Boston unnu :) jeij

Boston_Celtics
 
Boston vann meistaratitilinn í NBA. Geggjaður leikur sem ég horfði á í nótt. 

Ísbjarnargleði

yearofthepb
 
file19524
 
pbsaveme
 
 
 
Þetta video minnir mig svolítið á hana Perlu mína... algjör dúlla :) 

Pælingar Ástu :)

Hefur ykkur einhverntímann dreymt að e-h hefur dáið og svo nokkrum dögum seinna birtist sá sem í draumnum dó... mig hefur tvisvar dreymt svona... þetta er freka óþægilegt... Einu sinni þegar að ég var að vinna hjá Gallup þá dreymdi mig að kona sem var að vinna með mér þar dó... svo mæti ég þarna e-h tímann eftir að ég var hætt og þá sé ég konuna, mér brá ekkért smá mikið shett. Svo um daginn dreymdi mig að hún gamla mín... hún perla hundurinn minn sem er 13 ára dó svo er ég inni á klósetti daginn eftir og þar mætir Perla og mér brá líka frekar mikið þá en samt var ég svo ótrúlega ánægð að sjá hana...

En allavega nú er Brynja komin aftur á grensá... á morgun á að sprauta e-h efni í mænugöngin á henni til þess að reyna að minnka spasmann sem hún fær alltaf... E-h að reyna að koma henni í gang aftur. 

En nóg í bili... ætla að fara að vera dúleg og kaupa blóm og gróðursetja hérna fyrir utan og svo taka til og setja í þvottavél og svona... see ya later all


Fortíð og Framtíð

evolutionofman

Afmæliskveðja

Til hamingju með afmælið !
 
Arna og Brynja 
 
 
Litlar systur :D
 
 
 
Sætastar
 
 

Happy Birthday!

 

 

Arna og Brynja
 
Hafið það sem allra best í dag

 


Sumarið er tíminn


Myspace Graphics

Cool Gleðilegt sumar allir !!! Cool
 
 
Er svo bara búin að vera að læra upp á síðkastið og á einmitt í þessum töluðu orðum að vera að læra fyrir tölfræðipróf... er búin að vera að læra í allan dag og alla síðustu viku og verð að læra alla næstu viku og þarnæstu... svo ég vil byðja fólk að hrækja á bloggið mitt mér til lukku í prófunum... því fleiri því betra því þá kanski næ ég þeim öllum "vonandi"  
 
En annars er allt gott að frétta... Arna og Brynja eiga afmæli á mánudaginn 28 apríl og þá verða þær 22 ára... jibbí... en ég get því miður ekki verið á staðnum til að fagna með þeim og kaupi þá kanski bara e-h fallega afmælisgjöf handa þeim í staðinn. Benni og Andrea eru búin að kaupa sér nýjan bíl.. e-h rosa kagga, sem ég á by the way eftir að sjá.
Annars er kalt úti núna eiginlega bara vetrarveður en það er ágætt þar sem ég þarf þá ekki að hanga inni í sól og blíðu að læra... en hún kemur um leið og ég verð búin í prófum... ég er búin að spá því Tounge 
En allavega kanski ég bloggi meira eftir prófin... hafið það annars bara andskoti gott elskurnar mína og munið að hugsa til mín í prófunum. 

Allt búið

Jább nú er klíníska námið búið og ekki verður meira svoleiðis fyrr en eftir ár aftur... og þá lengra... þetta var samt rosalega gaman... en svo eftir klíníska á föstudaginn skutlaði ég mér upp í flugvél og fór í afmæli hjá honum palla á hvolsvelli á laugardagskvöldið... það var rosa stuð og Palli minn enn og aftur til Hamingju með 30 ára afmælið W00t það var rosa góður matur hjá ykkur bræðrum og allt var bara fínt í sambandið við þetta...

Nú er bara málið að byrja að læra fyrir prófin sem byrja áður en ég veit af, æji veit ekkért hvað ég er að bulla svo túrulú heyrumst. 


Trallalallala !!!

Hellú people... gaman að sjá og heyra í ykkur Wink Ótrúlegt þegar að ég er að keyra hérna á milli króksins og akureyri hvað veðrabreytingarnar geta verið ótrúlega miklar... ég var á leiðinni á akureyri um daginn og það var allt autt og í fínasta lagi með færð og veður... svo kem ég aðeins inn á nýja veginn þá er kominn skafrenningur og svo bara blindhríð uppi á heiði og ég vissi ekki hvar ég var fyrr en ég var loksins lennt á akureyri... svo var ég á leiðinni frá akureyri á krókinn og þá var sól og mikill snjór en rosa fallegt veður fyrir norðan og svo komum við yfir heiðina og þá er nánast allt autt... Increadeble... En nú fer þetta að verða búið í bili... prófin byrja 28 apríl á ammælisdaginn Örnu og Brynju... vonandi happa fyrir mig haha! og þau eru búin 12 maí... þá er það vinna og spánn í ágúst babe yea! Klíníska námið gengur annars rosa vel... þetta er voða gaman og mikil og góð tilbreyting... en ég er svosem ekki að gera mikið annað en það sem sjúkraliðar gera en fæ að sjá svona og gera samt ýmislegt sem ég hef ekki gert áður... Grin

Vona að allir hafi haft það súper gott um páskana... ég gerði það allavega og gerði heila ritgerð... 10 blaðsíður.  Við Brynja fór um í eftirlit til nýrna eftir páskana... Brynja fer í mænuskaðaeftirlit bráðum og kanski stoppar hún e-h við á grensás og verður þar í smá tíma... hún er að fara að fá e-h lyf til að hætta að reykja og núna langar henni að hætta svo vonandi getur hún það "Go Brynja" Við komum annars voða vel út... Brynja náttúrulega með blóðprufur eins og hún hafi fæðst með nýrað sem hún er með... og mitt var ágætt... Svo fór ég í beinþéttnimælingu um daginn og það kom í ljós að mín bein hafa stirskt um 10 - 20 % ég var ekkért smá ánægð með það en ég þarf samt að halda áfram að taka inn beinþynningarlyfin... Well ætla að segja þetta gott í bili... hafið það sem allra best...  


Eins og kramin padda

Ég skrapp á mælifell í gær... á ball með Páli Óskari sem er kanski ekki frásögufærandi en það var svo mikið af fólki þarna að mér leið eins og pöddu og ég var eiginlega kramin undir eins og ein slík Undecided en fyrir utan það var mjög fínt... en núna er ég að fara að klára ritgerðina mína hmmm ! korsakoff syndrome og sá sem vill vita hvað það er skal bara flétta því upp á www.google.com  sem eru vinur allra því að þar finnur maður allt milli himins og jarðar LoL Um daginn vorum við á fsa að læra og fá að sjá ýmislegt sem tengist hjúkrunarstarfinu... þetta var rosalega fínt... fengum að sjá heilalínurit, þolpróf og þar var tekið hjartalínurit í leiðinni og svo var tekið sykurþolspróf af einni og þvagpróf af einni og svo voru gerðar öndunarmælingar á sumum og svo fengum við að sjá hjartasónar... mjög merkilegt allt saman og svo núna 31. mars þá byrjum við í klínísku námi og þá fer ég á bæklunardeildina í 2 vikur á fsa. Held að það verði geggjað... en í dag er skírdagur og í dag eru akkurat 12 ár síðan að ég fermdist... who would have believed that ! hahaha ég er orðin gamalmenni en þá var akkurat eins brjálað og klikkað veður og er hérna í dag... en ætla að segja þetta gott í bili... vill svo fá slatta af góðum commentum Gleðilega páska

Happy Easter

Easter Truth



Hættum þessu bulli

Hellú hellú... margt búið að gerast síðastliðna daga hehe... Ég fór á árshátíð hjá HA um seinustu helgi og það var bara mjög gaman... og þessi vika er búin að líða eins og vindur... ég fór í próf í lífsmörkum um daginn og maður verður að ná 8 í þessum smá prófum... ég féll með sjö og átti því að fara í upptökupróf á morgun... en svo var ég á FSA áðan að læra að stinga og taka blóðprufur... og kíki svo í sakleysi mínu á símann minn og sé að það er missed call frá einhverjum svo að ég prufaði að hringja í númerið og þá var þetta kennarinn minn í hjúkrun sem sagði að ein spurning á prófinu hefði verið röng og ég fékk því rétt fyrir hana... hækkaði í einkunn og slepp við prófið á morgun... jeij !!! ekkért smá ánægð... og ég er líka ótrúlega ánægð með það hvað mér tókst vel að taka blóðprufurnar... fékk semsagt að prufa 2 sinnum og tókst það í fyrsta í bæði skiptin Grin svo var blóðið okkar rannsakað og mitt náttlega allt í brengli miðað við hina... en ég sagði rannsóknarkonunni frá því hvernig væri komið með mig... og þá skildi hún þessar hálf brengluðu prufur og sagði að þessar niðurstöður væru algengar í fólki eins og mér LoL hehe. Annars er ég búin að vera með frekar mikla heimþrá síðastliðna daga... mig langar rosalega að komast heim og vera þar í smá tíma og ég get því eiginlega ekki beðið eftir páskafríinu... en ég þarf samt líka að nota það í lærdóm... skrifa ritgerð og fleira skemmtilegt.

716ccc9cc1b64e6e13f702ab62b6c55f
Fyrsta árs hjúkkur í HA á akureyri :)

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband