Time for some blog.

Jæja nú er ég búin í prófum og loksins komin í langþráð jólafrí... Höfnunin á nýranu er gengin til baka og steraskammturinn er að verða kominn niður í það sem hann var áður. Ég var hjá lækninum í dag og hann sagði að ég væri svoldið steraleg... sem er reyndar satt.. þar sem andlitið á mér er eins og tungl í fullri fyllingu og mér finnst kinnarnar á mér potast í augun á mér því þær eru svo stórar... en þetta á að lagast á nokkrum vikum... vona að það geri það. Mér gekk annars ágætlega í prófunum en er ekki farin að fá út úr neinum þeirra... og núna er ég í Reykjavík þar sem ég þurfti að mæta til læknis og Brynja þurfti að mæta á grensás í botox... það var semsagt verið að setja botox í vöðvana hjá henni aftur til að stoppa spasmann... Svo erum við nottlega búnar að vera að þræða búðirnar og kaupa jólagjafir...

 

Merry Christmas


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband