Time flies

Sumarið er bara að verða búið finnst mér... það er kanski bara svona þegar að maður er að vinna á sumrin og nær ekki að nýta það eins og maður helst vildi og getað verið í fríi um hverja helgi og gert og komist þangað sem maður vill... En ég kemst bráðum í smá sumarfrí þangað til að ég þarf að fara að læra aftur og hugsa um skólann og lærdóminn... Ég er nebblega að fara til Benedorm í viku... vúhú !!! Það fyndna er samt að flest þau lönd eða borgir sem ég hef farið til byrja á B... ég hef farið til Boston náttlega nokkrum sinnum, svo hef ég farið til Bretlands og Berlín og núna er ég að fara til Benedorm hehe tilviljun. En ég verð þá úti á bene um versló og losna við lætin sem fylgja þessari annars ágætu helgi hérna heima.

Ég get svosem ekki kvartað þetta er svosem búið að vera ágætt sumar en bara svo hrikalega fljótt að líða og svo margt sem mig hefur langað að gera eins og að taka garðinn algjörlega í gegn og eiga meiri tíma með fjölskyldunni minni og vinum... en minn tími mun koma þegar ég er búin í skólanum og hana nú Tounge 

Well ákvað að skella bara niður hérna nokkrum línum og reyna að halda þessu við... væri til í nokkrar kveðjur og sonna... 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

hús jor daddy súperflæ heheh BENEDORM eftir 19 daga!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!! eigum við að ræða það e-h  ætlaði bara að kvitta fyrir innlitið kv ósk

ósk (IP-tala skráð) 12.7.2008 kl. 18:01

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband