31.10.2007 | 20:31
Lífið er ekki alltaf dans á rósum


Bloggar | Breytt s.d. kl. 20:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
23.10.2007 | 14:14
Tilhlökkun
Úúú mér er farið að hlakka svo til... Berlínarferðin er á fimmtudaginn... ég get ekki beðið... vona samt að hún eigi eftir að takast betur en ferðin hjá fyrri hópnum.. skylst að það hafi e-h ekki verið nógu gott... bilaðar rútur og týndar töskur en annars bara nokkuð góð ferð fyrir því... en það er samt alltaf ágætt að lenda í smá ævintýrum og rifja það upp eftir á :) Ég er ennþá svona að jafna mig eftir aðgerðina mína... hálsinn er í öllum litum sem völ er á að finna í marblettum... nárinn er að komast í lag en það er þó frekar óþægilegt að sytja... heftin taka svo agalega mikið í þarna svo að ég verð fegin þegar þetta verður tekið í burtu...En það verður samt gott að komast aftur í fasta rútínu... það er skrýtið hvað lítið má fara í kerfi þannig að maður finnur sig e-h veginn ekki... ég er samt búin að vera dugleg að læra þrátt fyrir að ég hafi misst þetta úr.
Það væri nú kanski ágætt að koma með smá fréttir af stelpunum... þeim gengur fínt í skólanum og Brynja er að brillera í æfingasalnum :D Þetta er allt að koma og svo sytur hún í slendertone beltinu sínu og buxunum á kvöldin og þjálfar lömuðu vöðvana sína með því :D
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
3.10.2007 | 22:46
Húrra!!!
Oh ég er ekkért smá ánægð þessa stundina... það er búið að fella niður klásus í hjúkrunarfræði sem þýðir líka það að allir komast inn og ef ég eða e-h annar fellur um jólin sem er reyndar ekki að fara að gerast í mínu tilfelli vona ég allavega en ef svo leiðinlega vill til að gerist þá má taka upptökupróf í janúar...
En trúi því varla að það séu að verða búnar 4. vikur af boot camp námskeiðinu... þetta er ekkért smá hressandi þrátt fyrir að ég er alltaf laaaang seinust af öllum að hlaupa... svo get ég ekki alltaf hlaupið og þá geng ég en ég geri þó allavega e-h
Svo er bara að koma að berlínarferð og mig er nú farið að hlakka lúmskt mikið til að komast þangað...

Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
20.9.2007 | 17:32
Strengir hér og þar...
...og allstaðar...Önnur vikan í bootcamp að verða búnir og þar með eru strengir búnir að gera vart við sig á ýmsum stöðum hehe. En þetta er bara gaman og ég mæli eindregið með þessari líkamsrækt. Skólinn gengur vel að mér finnst allavega og hann er líka skemmtilegur... en það er samt alltaf gott að koma heim á krók og hvíla sig og vera með hinum í fjölskyldunni... hundunum og hinum og læra... ég ætla ekki að segja að þetta hafi gengið mjög vel fyrir sig þessar 2 - 3 vikur sem við erum búnar að búa á Akureyri... netið æltaði t.d aldrei að komast í gagnið í íbúðinni hjá okkur... batteríið á tölvunni minni skemmdist og ég þurfti að eyða miklum peningum í nýtt og þessi fíni ísskápur sem við vorum búnar að fá gaf sig.... við sendum hann í viðgerð en það borgaði sig því miður ekki að láta gera við hann og því þurfti að splæsa í nýjan ísskáp... ekki gott það... svo að við áttum aldrei neitt að borða því að ekki gengur að geyma matinn endalaust úti á svölum svo við redduðum okkur bara með því að kaupa okkur alltaf að éta í hádeginu....versla mat og elda heima hjá Ester og borða þann mat svo í næstu 2 -3 máltíðir... ROSALEGT!!!
Vill fá góð comment eftir þetta.... og hana nú sagði hænan og lagðist á bakið hahaha!!!
Bloggar | Breytt s.d. kl. 17:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
9.9.2007 | 17:14
BooT CaMp
Nú er stefnan tekin á heilbrigt líferni og koma sér í kjólinn fyrir jólin haha !!! Ég og Rannveig erum búnar að koma okkur vel fyrir í kotinu sem við leigjum og nú er ég búin að draga allt liðið með mér í boot camp... það var svosem ekki erfitt en þetta byrjar allt saman fyrir alvöru á morgun :) Hef svosem ekki mikið að segja en skólinn byrjar vel og mér líst bara nokkuð vel á þetta svo er það bara Berlín í næsta mánuði... smá djamm með (vinnunni) hí hí...
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
29.8.2007 | 23:04
Háskólalíf
Jæja þá er maður byrjaður á fullu sem nemi í háskóla... ótrúlega skrýtið að segja frá því vegna þess að satt að segja átti ég ekki beint von á því að enda í háskóla þótt að mig hafi allta dreymt um að komast í háskóla og þetta nám hefur alltaf kallað sterkt á mig og sjáið mig bara núna... á varla líf vegna þess að ég er ný byrjuð í skólanum og næ varla að líta upp úr bókunum... maður þarf strax að fara á stjá og reyna að lesa og skilja í leiðinni... Þetta er samt mjög gaman þar sem að núna er maður loksins að læra e-h sem maður hefur áhuga á... vona bara að ég komist í gegnum þetta... það eru þó búnir að vera smá byrjunar örðuleikar eftir að ég flutti úr foreldrahúsunum... ég var í mat hjá Ester um daginn og um kvöldið þegar að ég ætlaði að fara heim þá fattaði ég að ég var búin að týna bíllyklunum mínum... ég læsti þá inni í bílnum... ég hringdi í neyðarlínuna því að ég vissi ekki hvert annað ég gæti hringt... fékk þá samband við lögregluna á Akureyri sem bennti mér á að hringja eitthvað annað... ætlaði að segja... benti mér á að flytja eitthvað annað haha... en allavega ég hringdi til að reyna að fá einhvern til að brjótast inn í bílinn minn en nei það kostaði litlar 3000 krónur að kvöldi til svo að ég varð að hringja í Kristínu og byðja hana um að sækja mig :) en svo reddaðist þetta í dag og ég sparaði mér 1000 kallinn en ég þurfti að borga 2000 kall til að fá mann til að brjótast inn í bílinn minn...
Annars vildi ég óska henni Guðrúnu minni Björsdóttur til hamingju með afmælisdaginn :) Knúsar og koss til þín Guðrún mín
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
12.8.2007 | 22:53
WOW

Get More Graphics at pYzam.com
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
7.8.2007 | 22:06
Kvef og bólgnir eytlar
Er að ná mér upp kvefi og það er farið að styttast í flutninga... ég kannaði Akureyri aðeins um versló og líst bara ágætlega á bæinn... hlakka til að fara að stúdera bækurnar og koma mér fyrir... Annars er lítið að gerast og segja enda er ég ekki mikil skrifmanneskja og kann illa að segja frá... Arna er farin að vinna á dvaló aftur og gengur vel og henni líst mjög vel á held ég... og sama sagan er með Brynju... hún er alltaf að styrkjast... það gerist hægt en gerist þó...
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.7.2007 | 20:42
Afmæli

Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
11.7.2007 | 21:54
Home sweet home

Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)