25.2.2007 | 20:50
Allt í góðum gír :)
Nú fer að styttast í að Brynja komi á krókinn... alfarið ef svo má segja... það er fundur næsta föstudag og þá verður ákveðið hvenær skvísan fær að koma heim á krókinn og halda áfram förinni hérna fyrir norðan. Hún er búin að vera dugleg að koma heim um hverja einustu helgi og sá tími sem hún er hér fer yfirleitt í góða hvíld frá daglegu amstri á Grensás. Annars er maður mikið búinn að vera í vinnunni þessa dagana og svo er komið að tveimur frídögum í vinnunni hjá mér núna og svo er komið að 7. daga törn hjá mér... annars er prófvika frammundan í skólanum og við Arna sytjum heima og lærum... annars er Arna sú duglega hún er búin að sytja yfir þessu alla helgina en ég er alveg viss um að henni á eftir að ganga vel í prófunum.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.